Print

Mál nr. 626/2012

Lykilorð
  • Kærumál
  • Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008

                                                         

Fimmtudaginn 4. október 2012.

Nr. 626/2012.

Ákæruvaldið

(Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)

gegn

X

(Stefán Karl Kristjánsson hdl.)

Kærumál. Gæsluvarðhald. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi áfram sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur.

Dómur Hæstaréttar.

Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Eiríkur Tómasson, Benedikt Bogason og Þorgeir Örlygsson.

Varnaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 3. október 2012 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. október 2012, þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 31. október 2012 klukkan 16, en þó ekki lengur en þar til dómur gengur í máli hans. Kæruheimild er í l. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Varnaraðili krefst þess aðallega að kröfu sóknaraðila verði hafnað, en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.

Hinn 24. september 2012 var gefin út ákæra á hendur varnaraðila þar sem honum er aðallega gefið að sök brot á 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga, en til vara brot á 2. mgr. 218. gr. sömu laga, með því að hafa 28. júlí 2012 veist að A með hnífi með þeim afleiðingum meðal annars að brotaþoli hafi hlotið stungusár vinstra megin á brjóstkassa þannig að hnífurinn hafi gengið inn í vinstra lunga hans og valdið loftbrjósti. Með vísan til þessa er fallist á með héraðsdómara að sterkur grunur leiki á að varnaraðili hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi. Enn fremur verður dregin sú ályktun af þeim sakargiftum, sem varnaraðili er borinn eftir því sem að framan greinir, að hann sé hættulegur umhverfi sínu verði hann látinn laus, þannig að áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt þessu verður hinn kærði úrskurður staðfestur. 

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 3. október 2012.

Ríkissaksóknari hefur krafist þess að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurði ákærða, A, [...], til að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 31. október 2012 kl. 16:00, en þó ekki lengur en þar til dómur gengur í máli hans. 

Í greinargerð lögreglu kemur fram að X sæti nú ákæru ríkissaksóknara vegna tilraunar til manndráps með því að hafa laugardagskvöldið 28. júlí sl. veist að A með hnífi og hafa veitt honum stungusár á brjóstkassa þar sem hnífurinn hafi gengið inn í vinstra lunga hans. Brotið sé talið varða við 211. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Vitni séu að atburðinum.

Ákærði hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 29. júlí sl. fyrst með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur í máli R-386/2012, á grundvelli rannsóknarhagsmuna, en síðan frá 9. ágúst sl. sjá úrskurð í máli R-399/2012 á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sml. og aftur 6. september sl. sjá úrskurð í máli R-427/2012. Úrskurðum þessum hefur ákærði öllum skotið til Hæstaréttar sem hafi staðfest þá, sjá mál Hæstaréttar nr. 523/2012, 539/2012 og 589/2012. Tveir síðastnefndu dómarnir séu um að ákærði skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sml. 

Ákæra ríkissaksóknara hafi verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í ljósi atvika ákæru ríkissaksóknara á hendur X sem staðfesti að ákærði sé undur sterkum grun um að hafa framið brot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi. Telji ákæruvaldið að öðrum skilyrðum 2. mgr. 95. gr. sml. sé einnig fullnægt.

Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamálamála sé þess krafist að krafan nái fram að ganga.

Ákærði hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 29. júlí 2012 vegna gruns um tilraun til manndráps. Hefur ákæra verið gefin út á hendur ákærða vegna þess brots, sem talið er varða við 211. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og var hún þingfest í héraðsdómi fyrr í dag. Málinu var þar frestað til 15. október nk. til framlagningar greinargerðar, en ákærði neitaði sök. Með vísan til framlagðra gagna og dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 589/2012 er á það fallist að ákærði sé undir sterkum grun um aðild að afbroti sem að lögum getur varðað tíu ára fangelsi. Verður að telja að brotið sé þess eðlis að gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Skilyrðum 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 er því fullnægt og verður krafa sóknaraðila því tekin til greina eins og hún er fram sett, en ekki þykir ástæða til að marka varðhaldinu skemmri tíma.

Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Ákærði, X, [...], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi allt til miðvikudagsins 31. október 2012 kl. 16:00, en þó ekki lengur en þar til dómur gengur í máli hans.