Skert starfsemi dómstólanna vegna COVID-19
13.03.2020
Skert starfsemi dómstólanna vegna COVID-19
Í ljósi neyðarstigs almannavarna og takmarkana á samkomuhaldi á grundvelli sóttvarnarlaga hefur verið ákveðið að næstu fjórar vikur verði starfsemi héraðsdómstólanna, Landsréttar og Hæstaréttar takmörkuð sem hér segir í því skyni að tryggja nauðsynlega starfsemi og að hún geti farið fram eftir því sem að fært þykir hjá hverjum dómstól.
Héraðsdómstólar
Eftirtalin mál verða tekin fyrir:
- Krafa lögreglu og héraðssaksóknara um gæsluvarðhald og aðrar rannsóknaraðgerðir
- Barnaverndarmál
- Nauðungarvistanir og önnur mál eftir lögræðislögum sem þola ekki bið
- Aðalmeðferðir í sakamálum þar sem ákærði sætir gæsluvarðhaldi
- Munnlegur flutningur mála þar sem aðilar og vitni koma ekki til skýrslugjafar nema fram komi ósk um frest
- Regluleg dómþing í einkamálum
- Beinar aðfarargerðir
- Kröfur um gjaldþrotaskipti þar sem fyrirkall hefur þegar verið birt. Jafnframt slíkar kröfur að beiðni skuldara sjálfs og þær kröfur sem ekki þola bið vegna hættu á réttarspjöllum. Enn fremur þau mál sem þegar hafa verið þingfest og eru í fresti
- Sakamál þar sem fyrirkall hefur verið birt og önnur sakamál sem ekki þola bið
Tekið skal fram að milliþinghöld í sakamálum og málum sem sæta meðferð samkvæmt ákvæðum laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 falla ekki niður. Þó getur dómari að höfðu samráði við lögmenn tekið aðra ákvörðun eftir því sem fært þykir í hverju máli fyrir sig.
Landsréttur
Eftirtalin mál verða tekin fyrir:
- Krafa lögreglu og héraðssaksóknar um gæsluvarðhald og aðrar rannsóknaraðgerðir
- Barnaverndarmál
- Nauðungarvistanir og önnur mál eftir lögræðislögum sem þola ekki bið
- Aðalmeðferðir í sakamálum þar sem ákærði sætir gæsluvarðhaldi
- Munnlegur flutningur mála þar sem aðilar og vitni koma ekki til skýrslugjafar nema fram komi ósk um frest
Hæstiréttur
- Málflutningur verður með áður boðuðum hætti nema fram komi ósk um frest.
Dómstólasýslan