Frestur til að kæra mál til Mannréttindadómstóls Evrópu styttur úr sex mánuðum í fjóra
28.01.2022
Vakin er athygli á því að með 15. samningsviðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu var frestur til að kæra mál til Mannréttindadómstólsins styttur úr sex mánuðum í fjóra frá því að réttarúrræði innanlands hafa verið tæmd, sbr. 1. mgr. 35. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessi breyting gildir frá 1. febrúar 2022 og á við um mál þar sem lokaákvörðun innanlands er tekin 1. febrúar 2022 eða síðar.
Nánari upplýsingar er að finna á vef dómstólsins [hér]