Heimsókn norrænna laganema
14.02.2023Í dag tók Hæstiréttur á móti norrænum laganemum og íslenskum gestgjöfum þeirra en þau eru stödd hér á landi í tilefni af norrænni laganemaviku og árshátíðar Orators, félags laganema við Háskóla Íslands. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, og Linda Ramdani, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim, kynntu þeim starfsemi réttarins og svöruðu fyrirspurnum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af þessu tilefni.