Heimsókn frá bandarískum laganemum
20.03.2023Í síðustu viku heimsóttu bandarískir laganemar úr Ohio Northern University í Ada, Ohio-fylki Hæstarétt ásamt íslenskum gestgjöfum þeirra úr Háskóla Íslands. Samstarf hefur verið á milli háskólanna í 63 ár síðan Ármann Snævarr prófessor og hæstaréttardómari kom því fót. Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari, Jenný Harðardóttir og Linda Ramdani aðstoðarmenn dómara tóku á móti þeim, kynntu þeim starfsemi réttarins og dómhúsið og svöruðu fyrirspurnum.
Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tilefni.