Heimsókn frá Verzlunarskóla Íslands
21.02.2024Nemendur í Verzlunarskóla Íslands komu ásamt kennara sínum, Birni Jóni Bragasyni, í heimsókn í Hæstarétt í vikunni. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri og Jenný Harðardóttir, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti gestunum, kynntu starfsemi réttarins og réttarkerfið og svöruðu spurningum.
Meðfylgjandi mynd var tekin við þetta tækifæri.