image

Heimsókn frá EFTA-dómstólnum

18.06.2024

Í liðinni viku fékk Hæstiréttur heimsókn frá Páli Hreinssyni forseta EFTA-dómstólsins og Ólafi Jóhannesi Einarssyni skrifstofustjóra dómstólsins. Á fundi með dómurum Hæstaréttar, öðru starfsfólki og Kristínu Haraldsdóttur framkvæmdastjóra dómstólasýslunnar sögðu þeir frá því helsta sem er á döfinni hjá EFTA-dómstólnum. Meðfylgjandi mynd var tekin við það tækifæri.