Heimsókn frá University of Missouri

28.06.2024

Í dag fékk Hæstiréttur heimsókn frá Kinder Institute of Constitutional Democracy en sú stofnun starfar á vegum University of Missouri í Bandaríkjunum. Með hópnum var Carrin F. Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Á móti gestunum tóku Benedikt Bogason, forseti réttarins, og Jenný Harðardóttir, aðstoðarmaður dómara. Benedikt ávarpaði hópinn og fjallaði um íslenskt réttakerfi og hlutverk Hæstaréttar í því. Myndin var tekin af þessu tilefni.