image

Fundur skrifstofustjóra æðstu dómstóla Norðurlandanna

03.09.2024

Árlegur fundur skrifstofustjóra æðstu dómstóla Norðurlandanna var haldinn á Íslandi að þessu sinni dagana 28. til 30. ágúst og tók Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri á móti hópnum. Á fundinum var gerð grein fyrir starfsemi dómstólanna á liðnu ári ásamt því að til umfjöllunar voru málefni sem eru efst á baugi og hafa sameiginlega þýðingu fyrir dómstóla landanna. Meðfylgjandi mynd var tekin af þessu tilefni.