image

Fundur forseta æðstu dómstóla Norðurlandanna

10.09.2024

Fundur forseta æðstu dómstóla Norðurlandanna var haldinn dagana 4. til 7. september í Dalarna í Svíþjóð. Á fundinum var venju samkvæmt fjallað um það sem efst er á baugi hjá dómstólunum og um ýmisleg sameiginleg málefni þeirra. Fundinn sótti af hálfu Hæstaréttar Benedikt Bogason forseti réttarins og Sigurður Tómas Magnússon varaforseti. Myndin var tekin við það tækifæri.