Hæstiréttur heimsóttur

12.09.2024

Í gær heimsótti Hæstarétt Laura Baudenbacher en hún er formaður stjórnar svissneska samkeppniseftirlitsins. Jafnframt rekur hún lögmannsstofu í Sviss og Noregi í félagi við föður sinn Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, og fleiri. Á móti henni tóku Benedikt Bogason, forseti réttarins, og Ólöf Finnsdóttur, skrifstofustjóri, og kynntu starfsemina.