Heimsókn frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla

01.10.2024

Nemendur úr Fjölbrautarskólanum við Ármúla ásamt kennara sínum, Ragnhildi Björgu Guðjónsdóttur, komu í heimsókn í Hæstarétt í dag. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar og Jenný Harðardóttir aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim, kynntu starfsemi réttarins og réttarkerfið og svöruðu spurningum.

Myndin var tekin við þetta tækifæri.