Oddný Mjöll Arnardóttir dómari við Mannréttindadómstól Evrópu heimsækir Hæstarétt
31.10.2024Í vikunni heimsótti Hæstarétt Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, og átti fund með dómurum og starfsmönnum réttarins. Ræddi hún um störf dómstólsins og hvað efst er á baugi á þeim vettvangi.