Heimsókn frá Menntaskólanum í Reykjavík

18.11.2024

Nemendur úr Menntaskólanum í Reykjavík ásamt kennara sínum, Þorsteini Davíð Stefánssyni, komu í heimsókn í Hæstarétt í liðinni viku. Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar, Ása Ólafsdóttir hæstaréttardómari, Linda Ramdani aðstoðarmaður dómara og Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri tóku á móti þeim, kynntu starfsemi réttarins og svöruðu fyrirspurnum.

Myndin var tekin við þetta tækifæri.