Ársskýrsla Hæstaréttar 2024
07.03.2025
Ársskýrsla Hæstaréttar fyrir árið 2024 er komin út. Í henni er að finna upplýsingar um starfsemi réttarins á liðnu ári. Einnig eru þar reifanir á helstu dómum sem gengu á árinu. Í skýrslunni er tölfræðileg samantekt með upplýsingum um fjölda mála eftir tegund þeirra, málsúrslitum og málsmeðferðartíma. Á árinu gengu 60 dómar auk þess sem afgreiddar voru 185 beiðnir um málskot. Ársskýrsluna má nálgast með því að smella hér.