Heimsókn frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla

07.04.2025

Í liðinni viku fékk Hæstiréttur heimsókn frá nemendum í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Með hópnum mætti kennari þeirra Ragnhildur Björg Guðjónsdóttir. Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar, Ólöf Finnsdóttir skrifstofustjóri og Linda Ramdani aðstoðarmaður dómara tóku á móti hópnum, kynntu starfsemi réttarins og svöruðu fjölmörgum áhugaverðum spurningum nemenda. Myndin var tekin við þetta tækifæri.